Matvælavinnslur
Við bjóðum upp á allar rekstrarvörur fyrir matvælavinnslu svo sem fiskeldi, fiskvinnslu og
kjötvinnslu. Má nefna vinnslufatnað, þrifafatnað, einnotafatnað, hreinlætisvörur, hnífa, brýni og
olíu-og smurefni sem hlotið hafa vottun til notkunar í matvælaiðnaði. Neytendur gera miklar kröfur
um hreinlæti við vinnslu matvæla og á því sviði bjóðum við einnig upp á góðar lausnir, svo sem,
þrifaplön og merkingar.
Strandveiðar
Við bjóðum upp á heildstæða þjónustu fyrir strandveiðar, til dæmis góð veiðarfæri á borð við Mustad
handfærakróka, tilbúna handfæraslóða, sökkur, sigurnagla og sjóklæðnað.
Útgerðir
Við seljum allt sem skip þurfa til að halda til veiða svo sem veiðarfæri, fatnað, hreinlætisvörur.
Hjá okkur færðu allt á einum stað og þú og þú einbeitir þér að því sem þú gerir best!
Bændur
Við erum með gott vöruúrval af rekstrarvörum fyrir bændur á hagstæðu verði eins og vinnufatnað,
stígvél, slitsterka vinnuhanska, járnavöru, hreinlætisefni, olí-og smurefni og hreinlætisáhöld.
Verktakar
Við erum með úrval af öryggis- og vinnufatnaði fyrir verktaka og iðnaðarmenn. Auk þess seljum við
til dæmis vottaðan hífibúnað, keðjur, olíu- og smurefni, stroffur og strekkjara.
Hótel og veitingarekstur
Við bjóðum hótelum og veitingastöðum upp á fjölbreytt úrval af rekstrarvörum. Meðal annars er boðið
upp á mikið úrval af hreinsiefnum og sápum, eldhúsvörum og salernisvörum.