Kvoðukútur með stuttri slöngu sem er hægt að setja ofan í niðurfallsop. Með því móti að nota kvoðusápu og kvoðukút fyllir sápublandan/sótthreinsiblandan betur upp í lagnir en fljótandi vökvi sem leggst aðeins neðst í lagnir og vinnur því betur á öllu yfirborði í lögnum og vinnur lengur á yfirborðum. Með því að fara með slönguna ofan í niðurfall byggist kvoðan upp lengra niðri í lögn og því fer kvoðan lengra niður í lagnir.